Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,0%, rúmlega þremur prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í október. Fylgi Samfylkingarinnar jókst um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 16,7% og fylgi Pírata jókst um tæpt prósentustig og mældist nú 14,3%. Þá minnkaði fylgi Miðflokksins um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 9,1%.
Þegar gögnin eru skoðuð aftur í tímann þá vekur athygli hve stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn sveiflast í gagnstæða átt við fylgi Miðflokksins. Frá því mælingar á stuðningi við Miðflokkinn hófust má sjá umtalsverða fylgni þarna á milli (r=0,6) og bendir hún til þess að nokkur barátta standi milli flokkanna um hilli sömu kjósendanna.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 51,7% og jókst um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,3%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,0% og mældist 21,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,7% og mældist 15,2% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 14,3% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,9% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 9,1% og mældist 11,6% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 7,5% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,0% og mældist 4,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,9% og mældist 3,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,1% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,0%), myndu skila auðu (4,5%), myndu ekki kjósa (2,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 925 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 11. nóvember 2020