Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,9%, tæplega fjórum prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í september. Fylgi Samfylkingarinnar jókst um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 15,2% en fylgi Pírata minnkaði um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 13,5%. Þá jókst fylgi Framsóknarflokksins um tæplega tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 10,2%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,3% og minnkaði um tæpt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 51,0%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,9% og mældist 25,6% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,2% og mældist 12,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,5% og mældist 15,0% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,6% og mældist 10,8% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,2% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 9,4% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 8,3% og mældist 8,5% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,6% og mældist 4,3% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,8% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,3% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,3%), myndu skila auðu (6,6%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,9%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 933 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 23. til 28. október 2020