Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,6%, rúmlega einu og hálfu prósentustigi hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í ágúst. Fylgi Pírata jókst um tæpt prósentustig og mældist nú 15,0% en fylgi Samfylkingarinnar minnkaði um tvö prósentustig og mældist nú 12,8%. Þá jókst fylgi Miðflokksins um tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 10,8%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 51,0% og jókst um tæpt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,1%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,6% og mældist 24,0% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 15,0% og mældist 14,3% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 12,8% og mældist 14,9% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,8% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,4% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 8,5% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,3% og mældist 8,9% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,3% og mældist 3,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,6% og mældist 4,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,7% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,8%), myndu skila auðu (4,9%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (7,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2.043 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 23. september 2020