Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,0%, óbreytt frá síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í júlí. Engar marktækar breytingar var að sjá á milli kannana en fylgi Samfylkingarinnar jókst um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 14,9% en fylgi Pírata minnkaði um rúmt prósentustig og mældist nú 14,3%. Þá jókst fylgi Viðreisnar um rúmlega eitt og hálft prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 10,0%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,1% og jókst um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 47,7%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,0% og mældist 24,0% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,9% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 14,3% og mældist 15,4% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 8,4% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 9,6% og mældist 10,8% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,9% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 8,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,8% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,4% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,2% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,0%), myndu skila auðu (6,8%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 929 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. ágúst til 2. september 2020