Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,3%, tæplega tveimur prósentustigum meira en í könnun MMR sem gerð var um miðjan júní og tæpu prósentustigi meira en í könnun maímánaðar. Fylgi Samfylkingar jókst um fjögur prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 16,3% og fylgi Pírata jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 13,2%. Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um þrjú prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 6,1% og fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmlega fjögur prósentustig frá síðustu könnun og mældist nú 8,0%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 46,8% og minnkar um þrjú prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 49,8%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,3% og mældist 22,7% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,3% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,2% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,7% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 11,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 6,1% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,4% og mældist 4,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,5% og mældist 3,3% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,4% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,1% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,3%), myndu skila auðu (8,4%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.045 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 16. til 19. júní 2020