Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,5%, sem er rúmu prósentustigi meira en í könnun MMR sem gerð var í upphafi maí en á pari við fylgi flokksins í apríl. Fylgi Pírata jókst um þrjú prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 14,6% og fylgi Samfylkingar jókst um eitt prósentustig og mældist nú 13,3%. Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 6,4% en fylgi flokksins hefur ekki mælst svo lágt frá síðustu kosningum.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 47,5% og minnkar um tæp sjö prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 54,2%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,5% og mældist 22,2% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 14,6% og mældist 11,6% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,3% og mældist 12,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 11,3% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,8% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,6% og mældist 11,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 6,4% og mældist 9,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,1% og mældist 4,3% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,6% og mældist 3,9% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,8% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 76,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,7%), myndu skila auðu (7,1%), myndu ekki kjósa (2,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 944 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 19. til 25. maí 2020