Eftir nokkrar sveiflur á fylgi stjórnmálaflokka síðustu vikur og aukinn stuðning við ríkisstjórnina þá gefa nýjar niðurstöður úr könnun MMR til kynna að fylgi flokkanna sé almennt að færast í líkt horf og var áður en áhrifa Covid-19 faraldursins gætti að fullu hér á landi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,7%, sem er tæpu prósentustigi minna en í könnun MMR sem gerð var við upphaf apríl en á pari við fylgi flokksins í febrúar. Samfylkingin mældist næst með 13,1% fylgi, um prósentustigs lækkun frá síðustu mælingu. Fylgi Vinstri grænna minnkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 10,4% og fylgi Framsóknarflokksins jókst um rúmt prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 9,8%. Þá jókst fylgi Sósíalistaflokks Íslands um rúm 2 prósentustig og mældist nú 5,6%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 51,1% og minnkar um rúmlega fimm prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 56,2%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,7% og mældist 23,5% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1% og mældist 14,1% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,3% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,4% og mældist 12,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,8% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 9,5% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,6% og mældist 3,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,7% og mældist 3,4% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,0% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 76,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,4%), myndu skila auðu (6,6%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.051 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 17. apríl 2020