Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 23,5%, sem er tæpum fjórum prósentustigum minna en í könnun MMR sem gerð var í mars, þegar stuðningur við flokkinn jókst töluvert eftir nokkurra mánaða tímabil þar sem stuðningur við flokkinn sveiflaðist í kring um 20%. Samfylkingin mældist næst með 14,1% fylgi, innan við prósentustigs lækkun frá síðustu mælingu. Fylgi Vinstri grænna jókst aftur á móti um tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 12,3% og hefur ekki mælst hærri frá í september 2019. Þá jókst fylgi Pírata um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældust þeir nú með 12,2% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 56,2% og hækkar um rúm þrjú prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 52,9%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,5% og mældist 27,4% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,1% og mældist 14,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,3% og mældist 9,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,2% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,7% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,6% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,8% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,4% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,4% og mældist 3,7% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,1% samanlagt.

2004 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (7,8%), myndu ekki kjósa (3,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 987 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 3. til 7. apríl 2020