Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,4%, sex prósentustigum meira en í könnun MMR sem gerð var í seinni hluta febrúar. Mældust Samfylkingin með 14,7% fylgi og Píratar með 10,2% fylgi, svipað og við síðustu mælingu. Þá mældist Miðflokkurinn með 10,0% fylgi, tveimur og hálfu prósentustigi minna en við síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 52,9% og hækkar um rúm fjórtán prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 38,8%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,4% og mældist 21,3% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,7% og mældist 15,4% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,2% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,0% og mældist 12,6% í síðustu könnnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 9,8% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,1% og mældist 7,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,7% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,7% og mældist 4,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,7% samanlagt.

2003 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,6%), myndu skila auðu (5,4%), myndu ekki kjósa (3,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2003 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2003 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.034 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 18. til 20. mars 2020