Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,0%, sem er þremur prósentustigum meira en í síðustu könnun MMR sem gerð var í seinni hluta janúar en 1,7 prósentustigum meira en var í upphafi janúar. Mældist Samfylkingin með 15,1% fylgi, einu og hálfu prósentustigi minna en við síðustu mælingu en Miðflokkurinn mældist með 13,3% fylgi, tæplega tveimur prósentustigum minna en við síðustu mælingu. Þá mældust Vinstri-græn með 10,7% fylgi og Píratar með 10,4% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 41,9%, samanborið við 38,9% í síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,0% og mældist 19,0% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,1% og mældist 16,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 13,3% og mældist 15,1% í síðustu könnnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,7% og mældist 8,7% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,4% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 6,8% og mældist 7,2% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,3% og mældist 4,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,6% og mældist 3,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,1% samanlagt.

2002 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (6,5%), myndu ekki kjósa (3,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2002 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2002 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.003 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 10. febrúar 2020