Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 20,3%, nær óbreytt frá mælingu MMR í desember. Mældist Samfylkingin með 16,8% fylgi, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu mælingu en Miðflokkurinn mældist með 12,9% fylgi, rúmu prósentustigi minna en við síðustu mælingu. Þá mældust Vinstri-græn með 11,1% fylgi og Píratar með 11,0% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 41,2%, samanborið við 39,0% í síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 20,3% og mældist 20,0% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,8% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 12,9% og mældist 14,3% í síðustu könnnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,0% og mældist 11,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,5% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,2% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,1% og mældist 5,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,5% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,5% samanlagt.

2001 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,1%), myndu skila auðu (5,3%), myndu ekki kjósa (2,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2001 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2001 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2.057 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 3. til 13. janúar 2020