Þeim fækkar sem hyggjast borða hangikjöt á jóladag en vinsældir grænmetisfæðis og nautakjöts hafa ekki verið jafn háar síðan mælingar MMR á jólahefðum landsmanna hófust árið 2010. Alls kváðust 68% landsmanna ætla að borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag en hlutfall þeirra hefur lækkað um 5 prósentustig frá upphafi mælinga. 8% kváðust ætla að gæða sér á hamborgarahrygg, 4% á lambakjöti öðru en hangikjöti, 4% á grænmetisfæði, 4% kalkún, 3% á nautakjöti og 9% svarenda kváðust munu borða annað en ofantalið.
Spurt var: „Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á jóladag?“
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur,
lambakjöt (annað en hangikjöt), nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur), önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara.
Svarhlutfall var 91,3%.
Munur eftir lýðfræðihópum
Karlar reyndust líklegri heldur en konur til að segjast ætla að gæða sér á hamborgarahrygg (10% karla; 6% kvenna) eða nautakjöti (4% karla; 1% kvenna) á jóladag en konur voru líklegri til að segjast ætla að borða grænmetisfæði (6% kvenna; 3% karla), kalkún (6% kvenna, 2% karla) eða annan mat en hér er talinn upp (11% kvenna; 8% karla).
Hlutfall þeirra sem kváðust munu borða hangikjöt sem aðalrétt jókst með auknum aldri en 75% þeirra 68 ára og eldri kváðust ætla að gæða sér á hangikjötinu á jóladag, samanborið við 61% þeirra 18-29 ára. Svarendur yngri en 50 ára (10%) voru hins vegar líklegri en eldri svarendur til að segjast ætla að borða hamborgarhrygg í aðalrétt á jóladag. Svarendur í yngsta aldurshópi (18-29 ára) reyndust líklegastir allra til að segjast ætla að gæða sér á grænmetisfæði (8%) en hlutfallið fór minnkandi með auknum aldri.
Svarendur af landsbyggðinni (76%) reyndust líklegri en þau af höfuðborgarsvæðinu (63%) til að segjast ætla að gæða sér á hangikjöti á jóladag. Íbúar höfuðborgarsvæðisins reyndust aftur á móti líklegri til að munu borða hamborgarhrygg (9%) eða grænmetisfæði (5%) heldur en landsbyggðarbúar (6% hamborgarhrygg; 1% grænmetisfæði).
Fyrirætlanir í matarvali á jóladag reyndust nokkuð breytilegar eftir flokkslínum. Stuðningsfólk Framsóknar (80%) reyndist líklegast allra til að segjast ætla að gæða sér á hangikjöt í aðalrétt en stuðningsfólk Pírata (50%) ólíklegast. Stuðningsfólk Pírata (11%) og Samfylkingar (10%) reyndist líklegast til að hyggja á að borða grænmetisfæði á jóladag en stuðningsfólk Framsóknar (0%) og Miðflokks (1%) ólíklegast. Þá reyndist stuðningsfólk Pírata einnig líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast ætla að gæða sér á hamborgarhrygg (10%) eða nautakjöti (6%) á jóladag.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.014 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 13.-19. desember 2019
Eldri kannanir sama efnis:
2018 desember: Dregur úr hangikjötsneyslu á jóladag
2017 desember: Hangikjötið á jóladag klassík
2016 desember: Vísbendingar um minnkandi vinsældir hangikjötshefðarinnar
2015 desember: Íslendingar ríghalda í hangikjötshefðina
2014 desember: 70% Íslendinga borða hangikjöt á jóladag
2013 desember: Flestir ætla að borða hangikjöt á jóladag
2012 desember: Flestir ætla að borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag
2011 desember: Þrír af hverjum fjórum borða hangikjöt á jóladag
2010 desember: Íslendingar halda fast í hefðir í jólamat á jólum