Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 18,1%, þremur prósentustigum minna en við mælingu MMR í seinni hluta október. Fylgi Miðflokks mældist 16,8% og jókst um rúmlega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Þá minnkaði fylgi Samfylkingar um rúm tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 13,2% en fylgi Pírata jókst um tæplega tvö prósentustig og mældist nú 10,8%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 41,5%, samanborið við 42,2% í síðustu könnun.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 18,1% og mældist 21,1% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 16,8% og mældist 13,5% í síðustu könnnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,2% og mældist 15,3% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,8% og mældist 8,9% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,6% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,4% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,3% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,0% og mældist 2,6% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,2% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,7%), myndu skila auðu (5,0%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.061 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 22. nóvember 2019