Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,8%, einu og hálfu prósentustigi meira en við mælingu MMR í september. Fylgi Miðflokksins mældist 14,8% og jókst um tæp þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Þá minnkaði fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig og fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tvö og hálft prósentustig.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 42,0%, samanborið við 43,7% í síðustu könnun.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,8% og mældist 18,3% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 14,8% og mældist 12,0% í síðustu könnnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,1% og mældist 14,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 11,0% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,3% og mældist 12,8% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,1% og mældist 11,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 8,8% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,6% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,1% og mældist 2,0% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,4% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,9%), myndu skila auðu (6,7%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2124 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 30. september til 9. október 2019