Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,1% og er það óbreytt frá mælingu MMR í júlí. Fylgi Samfylkingar mældist 16,8% og jókst um rúm fjögur prósentustig frá síðustu mælingum. Þá minnkaði fylgi Pírata um um tæp þrjú prósentustig milli mælinga og mældist nú 11,3%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 38,8%, samanborið við 40,3% í síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,1% og mældist 19,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,8% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 13,0% og mældist 12,4% í síðustu könnnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,5% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,3% og mældist 14,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,4% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,3% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,1% og mældist 6,8% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,9% og mældist 3,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,6% samanlagt.

1908 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,6%), myndu skila auðu (8,2%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1908 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1908 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 990 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 19. ágúst 2019