Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,0% og minnkaði um rúm þrjú prósentustig frá mælingu MMR í júní. Fylgi Pírata mældist 14,9% og hélst nær óbreytt frá síðustu mælingum. Þá jókst fylgi Miðflokksins um um tæp fjögur prósentustig milli mælinga og mældist nú 14,4%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 40,9% samanborið við 40,2% í könnun júnímánaðar.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,0% og mældist 22,1% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 14,9% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 14,4% og mældist 10,6% í síðustu könnnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,5% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,3% og mældist 11,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,7% og mældist 9,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,4% og mældist 7,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,8% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,3% og mældist 4,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 0,8% samanlagt.

1907 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,6%), myndu skila auðu (7,5%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1907 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1907 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2031 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 4. til 17. júlí 2019