Dægurmál

|

Það er flestum ferskt í minni þegar bandaríski heildsölurisinn Costco hóf innreið sína á íslenskan markað snemmsumars 2017. Landsmenn flykktust í verslunina til að gera hagstæð kaup og sýndi könnun MMR í janúar 2018 að heil 71% landsmanna væru með aðildarkort í Costco.

MMR endurtók á dögunum mælinguna frá 2018 og í ljós kom að nokkuð færri Íslendingar eru með virkt Costco aðildarkort nú heldur en við síðustu mælingu. Er nú rúmlega helmingur (53%) Íslendinga með virkt aðildarkort í Costco samanborið við 71% landsmanna í upphafi árs 2018.

Á sama tíma og þeim hefur fækkað sem eru með virkt Costco aðildarkort hefur hlutfalli þeirra sem hyggjast endurnýja kortið aukist. Hyggjast nú 78% þeirra sem hafa virkt aðildarkort endurnýja kortið þegar þar að kemur samanborið við 60% í janúar 2018.

1905 CostcoAðild2Spurt var: „Ert þú með virkt Costco aðildarkort?“
Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“, „Veit ekki“ og „Vil ekki svara“. Samtals tóku 99,4% afstöðu til spurningarinnar.
 

 

1905 CostcoEndurnýjun2Spurt var: „Ætlar þú að endurnýja Costco aðildarkortið þitt þegar endingartími þess rennur út?“
Spurð voru þau sem sögðust vera með virkt Costco aðildarkort í fyrri spurningu.
Svarmöguleikar spurningarinnar voru: „Já“, „Nei“, „Veit ekki“ og „Vil ekki svara“. 

 

Munur eftir lýðfræðihópum

Fólk á aldrinum 30-49 ára (62%) og 50-67 ára (60%) reyndist líklegra en fólk í öðrum aldurshópum til að hafa virkt Costco aðildarkort. Þá reyndist fólk á aldrinum 50-67 ívið líklegra en aðrir til að ætla að endurnýja Costco aðild sína eða 85%. 

Höfuðborgarbúar (58%) reyndust líklegri til að vera með Costco aðildarkort heldur en íbúar landsbyggðarinnar (42%) en hlutfall þeirra sem hugðust endurnýja aðildina var nokkuð jafnt eða tæp 80% bæði hjá höfuðborgarbúum og íbúum landsbyggðarinnar.

 

1905 Costco Kross1 2

 

Nokkur munur var á Costco aðild eftir stjórnmálaviðhorfum. Stuðningsfólk Miðflokksins reyndist hvað líklegast til að vera með Costco aðildarkort eða 72%. Um helmingur stuðningsfólks Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar voru með virkt aðildarkort en einungis 34% stuðningsfólks Vinstri grænna. Stuðningsfólk Miðflokksins reyndist jafnframt líklegast til að ætla að endurnýja Costco aðild sína eða 91%.

 

1905 Costco Kross2 2

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 932 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 23. til 29. maí 2019

Eldri kannanir sama efnis:
2018 janúar: MMR könnun: 35% óviss hvort þau endurnýji Costco aðild