Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 23,6% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-14. mars. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 15. febrúar. Samfylkingin mældist með 13,8% fylgi, sem er rúmlega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Píratar mældust með 13,6% fylgi, sem er rúmum þremur prósentustigum meira en í síðustu mælingum. Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um rúm tvö prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingum.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði lítillega en 41,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 42,8% í síðustu mælingu.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,4% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,1% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,4% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,7% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,5% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,9% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,2%), myndu skila auðu (8,3%), myndu ekki kjósa (2,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1025 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 14. mars 2019