Alþingiskosningar

|

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,7% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-15. febrúar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 28. janúar. Samfylkingin mældist með 15,9% fylgi, sem er tæplega hálfu prósentustigi meira en flokkurinn mældist með í síðustu könnun og fylgi Framsóknarflokksins jókst um tæpt prósentustig og mældist nú 13,5%. Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt prósentustig, fylgi Pírata minnkaði um rúmlega eitt og hálft prósentustig og fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 42,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,5% í síðustu mælingu.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,4% og mældist 12,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,1% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,9% og mældist 5,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,1% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 5,2% samanlagt.

1902 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,8%), myndu skila auðu (7,9%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1902 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1902 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 934 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 15. febrúar 2019