Alþingiskosningar

|

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,2% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 4.-14. janúar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hélst nær óbreytt frá síðustu mælingu sem lauk 11. desember. Samfylkingin mældist með 15,0% fylgi, sem er tæplega tveimur prósentustigum minna en flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt og hálft prósentustig*, fylgi Miðflokksins jókst um eitt prósentustig og fylgi Flokks fólksins jókst um tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 40,3% í síðustu mælingu.

Fylgi Pírata mældist nú 13,8% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,7% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,3% og mældist 12,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,8% og mældist 8,5% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokks mældist nú 6,9% og mældist 5,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,7% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,6% samanlagt.

1901 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,5%), myndu skila auðu (8,6%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1901 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1901 Studningur


 *Í fyrri útgáfu kom fram að fylgi Vinstri grænna hafði minnkað um rúmlega tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingum. Minnkunin var hins vegar rúmlega eitt og hálft prósentustig.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2061 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 4. til 14. janúar 2019