Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,1% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 5.-11. desember. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 21. nóvember. Samfylkingin mældist með 16,9% fylgi, sem er svipað fylgi og flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Píratar bættu rúmlega þremur prósentustigum við fylgi sitt frá síðustu könnun og mældust með 14,4% fylgi. Þá bættu Vinstri græn rúmlega tveimur og hálfu prósentustigi við fylgi sitt og Framsóknarflokkurinn bætti við sig fimm prósentustigum frá síðustu mælingu. Fylgi Miðflokksins féll hins vegar um rúmlega sjö prósentustig frá síðustu mælingum.
Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 40,3% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 39,9% í síðustu mælingu.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,9% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 12,5% og mældist 7,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,5% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokks mældist nú 5,9% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,2% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 82,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,5%), myndu skila auðu (8,2%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 975 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 5. til 11. desember 2018