Alþingiskosningar

|

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með með stuðning 23,7% landsmanna og þar með stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 16.-22. maí. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dróst þó saman um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 2. maí. Samfylkingin mældist með 14,6% fylgi sem var á pari við síðustu mælingu. Píratar mældust nú með 14,1% fylgi og bæta við sig rúmu prósentustigi milli mælinga.

Stuðningur við ríkisstjórnina dalaði milli mælinga en 49,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 52,8% í síðustu mælingu.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,0% og mældist 13,7% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 10,1% og mældist 8,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 9,8% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,1% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,6% og mældist 5,8% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 3,0% samanlagt.

1805 fylgi sulur 2

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 84,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (4,0%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1805 fylgi 2

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1805 studningur 3

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 929 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 16. til 22. maí 2018