Sjálfstæðisflokkurinn mældist stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi með stuðning 23,9% landsmanna samkvæmt könnun MMR sem framkvæmd var dagana 13.-19. apríl. Píratar mældust annar stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi með 15,3% fylgi og bæta við sig 2,1 prósentustigum frá síðustu mælingu sem lauk 19. mars síðastliðinn. Vinstri græn mældust á svipuðum slóðum og í síðustu mælingu og fá 14,3% fylgi. Samfylkingin tapar 2,5 prósentustigum milli mælinga en Flokkur fólksins bætir við sig 3,3 prósentustigum.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 53,1%. Stuðningurinn dalar eilítið frá síðustu mælingu þegar 55,2% kváðust styðja ríkisstjórnina.
Fylgi Samfylkingar mældist nú 13,6% og mældist 16,1% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,8% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 7,3% og mældist 9,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,0% og mældist 6,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,9% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,8% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,7% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,8%), myndu skila auðu (5,0%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 910 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 19. apríl 2018