Alþingiskosningar

|

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með með stuðning 22,3% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 25-30. janúar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst þó saman um 3,5 prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 17. janúar. Vinstri græn mældust með 18,4% fylgi og bæta við sig 3,4 prósentustigum milli mælinga. Samfylkingin mældist nú með 14,9% fylgi og bætir við sig einu prósentustigi milli mælinga.

Stuðningur við ríkisstjórnina dalar milli mælinga en 60,6% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 64,7% í síðustu mælingu í janúar og 66,7% í desember 2017.

Fylgi Pírata mældist nú 12,9% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,2% og mældist 11,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 7,7% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,0% og mældist 6,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,2% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,4% samanlagt.

1801 fylgi table2

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 88,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,4%), myndu skila auðu (5,2%), myndu ekki kjósa (1,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1801 fylgi throun

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1801 studningur throun

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 928 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 25. til 30. janúar 2018