Sjálfstæðisflokkurinn mædist með með stuðning 23,2% landsmanna og þar með stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 12-15.desember. Samfylkingin og Vinstri græn mælast nokkurn vegin jafn stór, með tæplega 17% fylgi, en Vinstri græn bæta við sig 3,7 prósentustigum frá því í síðustu könnun sem lauk þann þann 17. nóvember síðastliðinn. Píratar bæta við sig 4,2 prósentustigum milli kannana og Flokkur fólksins tapar 4,7 prósentustigum.
Mikil og almenn ánægja mældist meðal landsmanna með nýja ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar en 66,7% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina. Þetta er meiri stuðningur en nokkur ríkisstjórn hefur notið frá hruni og ekki síst merkilegur fyrir þær sakir að mun færri, eða rúm 48%, segjast myndu kjósa ríkisstjórnarflokkana.
Fylgi Pírata mældist nú 14,1% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,7% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,5% og mældist 9,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 5,7% og mældist 6,5% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,7% og mældist 8,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,5% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 88,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,6%), myndu skila auðu (4,4%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 923 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 15. desember 2017