Stuðningur við Vinstri græn hefur dalað um 3,6 prósentustig frá síðustu alþingiskosningum og mælist nú 13,0%. Á sama tíma hefur stuðningur við Samfylkingu aukist úr 12,1% í 16,0%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 87,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,1%), myndu skila auðu (4,0%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
60% kjósenda Vinstri grænna myndu kjósa flokkinn aftur
Einungis 60% af þeim sem kusu Vinstri græn síðast sögðust myndu kjósa flokkinn aftur ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þá sögðust 15% þeirra sem kusu Vinstri græn síðast ætla að kjósa Samfylkinguna nú og 6% þeirra myndu kjósa Pírata. Þetta gæti gefið til kynna óánægju á meðal kjósenda Vinstri grænna með stöðu stjórnarmyndunarviðræðna. Þá var einnig áberandi lágt hlutfall, eða 66%, meðal kjósenda Framsóknarflokksins sem sagðist kjósa flokkinn aftur núna. Af kjósendum einstaka flokka var hlutfall þeirra sem sögðust ætla kjósa sama flokkinn aftur núna hæst meðal kjósenda Samfylkingarinnar, en 91% þeirra sögðust styðja flokkinn áfram ef kosið til Alþingis í dag.
Í könnuninni var spurt hvaða flokka kjósendur vildu síst hafa í ríkisstjórn. Af niðurstöðunum að dæma má sjá að stuðningur við stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna er æði mismunandi í baklandi flokkanna. Sem dæmi má nefna að á sama tíma og 6% kjósenda Sjálfstæðisflokksins vilja síst starfa með Vinstri grænum sögðust 57% kjósenda Vinstri grænna síst vilja hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn - sem gæti verið skýringin á því að 40% kjósenda Vinstri grænna sögðust ekki myndu kjósa þá aftur.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 944 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 14. til 17. nóvember 2017