Miklar hreyfingar virðast á fylgi stjórnmálaflokkanna þessa síðustu daga fyrir kosningar. Frá síðustu könnun MMR á fylgi flokka sem birt var í byrjun vikunnar hefur fylgi Vinstri grænna minnkað um tæp 3 prósentustig og mælist flokkurinn nú, síðasta sólarhringinn, með 16,6% fylgi. Fylgi Framsóknarflokksins hefur aftur á móti farið vaxandi frá síðustu mælingu og mældist nú 11,7% borið saman við 8,6% í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 21,3% fylgi en mældist 22,9% í síðustu könnun.
Niðurstöðurnar benda til þess að stór hluti kjósenda sé enn ekki fyllilega búinn að ákveða sig og að frekari fylgisbreytingar séu líklegar fram að kosningunum á morgun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 12,5% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,4% og mældist 12,3% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,0% og mældist 9,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,1% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,4% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 2,2% og mældist 1,8% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 0,9% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 91,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,1%), myndu skila auðu (3,2%), myndu ekki kjósa (0,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,1%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 980 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. til 27. október 2017