Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með mest fylgi íslenskra stjórnmálaflokka samkvæmt könnun MMR, eða 19,9%. Vinstri græn fylgja strax á eftir með 19,1% fylgi. Gagnaöflun stóð yfir dagana 17. til 18. október 2017.
Athygli vekur að fylgi Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna heldur áfram að minnka en Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 21,1% fylgi og Vinstri græn með 21,8% fylgi í síðustu mælingu MMR þann 11. október 2017.
Á sama tíma jókst fylgi Samfylkingarinnar og mælist nú 15,8% en flokkurinn mældist með 13,0% í síðustu mælingu og 10,4% undir lok september. Stuðningur við Samfylkinguna hefur því aukist um 5,4 prósentustig á innan við mánuði.
Stuðningur við ríkisstjórnina hækkaði milli mælinga. Kváðust 23,8% styðja ríkisstjórnina samanborið við 21,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,9% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,0% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknar mældist nú 8,0% og mældist 5,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,7% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokk fólksins mældist nú 5,3% og mældist 7,4% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 1,6% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 0,8% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 87,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,9%), myndu skila auðu (5,3%), myndu ekki kjósa (1,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1007 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 17. til 18. október 2017