Vinstri græn mælast með mest fylgi íslenskra stjórnmálaflokka, eða 24,7%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur lækkað um tæp 2 prósentustig frá síðustu könnun MMR sem lauk 4. september 2017 og mældist nú 23,5%. Fylgi Samfylkingarinnar (10,4%) hækkaði á milli mælinga og fylgi Pírata (10,0%) lækkaði milli mælinga. Athygli vekur að fyrirhugaður stjórnmálaflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar mælist með stuðning 7,3% kjósenda og mælist þar með stærri en Viðreisn, Björt framtíð og Framsóknarflokkurinn - sem mælist með 3% lægra fylgi nú en var í upphafi mánaðarins.
Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli mælinga. Kváðust 22,5% styðja ríkisstjórnina samanborið við 29,5% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,4% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,0% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 8,5% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknar mældist nú 6,4% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 4,9% og mældist 7,3% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 2,5% og mældist 3,0% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,7% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 87,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (3,6%), myndu ekki kjósa (1,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1012 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. til 28. september 2017