Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur dalað um tæp 5% fylgi frá síðustu mælingu MMR sem lauk þann 21. júlí síðastliðinn en flokkurinn mælist þó enn með mest fylgi allra íslenskra flokka, eða 24,5%. Flokkur Vinstri grænna fylgdi þar á eftir með 20,5% fylgi og Píratar mældust með 13,5% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli mælinga. Kváðust 27,2% styðja ríkisstjórnina samanborið við 34,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,1% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokk fólksins mældist nú 6,7% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,0% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 3,6% og mældist 2,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,9%), myndu skila auðu (6,2%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 955 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 18. ágúst 2017