Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 18. til 21. júlí 2017 er Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi íslenskra flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 29,3% og er það tæplega eins prósentustiga aukning frá síðustu könnun sem lauk 21. júní 2017. Fylgi Vinstri grænna (20,4%) lækkaði milli mælinga en fylgi Pírata (13,3%) stóð í stað. Athygli vekur að fylgi Flokks fólksins jókst um 3,3 prósentustig milli mælinga og hefur aldrei mælst með jafn mikið fylgi, eða 6,1%.
Stuðningur við ríkisstjórnina hækkaði milli mælinga. Kváðust 34,1% styðja ríkisstjórnina samanborið við 33,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,6% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,1% og mældist 2,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 4,7% og mældist 5,3%% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 2,4% og mældist 3,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 3,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,4%), myndu skila auðu (7,0%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 909 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 18. til 21. júlí 2017