Könnun MMR á því hvernig Íslendingar vilja hafa ristað brauðið sitt leiðir í ljós að yfirgnæfandi meirihluti vill fá brauðið sitt meðalristað. Svarendum voru sýndar myndir af sex mismunandi ristuðum brauðsneiðum þar sem númer gáfu til kynna samsvarandi stillingu á brauðrist og í kjölfarið boðið að velja það sem kæmist næst óskum þeirra um hið fullkomna ristabrauð.
Af brauðsneiðunum sex voru tvær meðalristaðar brauðsneiðar (stillingar 3 og 4 sem gefa ljós- eða dökkgyllta áferð). Í ljós kom að yfirgnæfandi meirihluti, eða 85%, kusu annan hvorn þessara gylltu tóna. Þannig voru 54% svarenda sem kusu helst að hafa ristabrauðið sitt ljósgyllt (stilling 3) og 31% svarenda völdu hinn dökkgyllta blæ (stilling 4). Enginn vildi brauðið sitt brennt og 2% sögðust ekki borða ristað brauð.
Í könnuninni var ekki gert ráð fyrir að ristabrauðsvélar geta haft mismunandi fjölda stillinga heldur gengið út frá því að unnið væri með vél sem hefði sex stillingar. Þá var ekki spurt um val fólks á viðbiti eða öðru áleggi á ristabrauð - en borðleggjandi að það verði gert í framhaldinu.
Spurt var: „Hvernig viltu hafa brauðið þitt ristað?“ Svarmöguleikar voru eins og að ofan greinir auk
„veit ekki/vil ekki svara“. Samtals tóku 99,6% svarenda afstöðu til spurningarinnar.
Munur á smekk eftir lýðfræðihópum
Íslendingar voru almennt sammála um það að vilja brauðið sitt meðalristað. Sá hópur sem líklegastur var þó til að vilja brauðið sitt ljósgyllt voru konur á aldrinum 68 ára og eldri og ekki útivinnandi. Samanborið við aðrar starfsstéttir voru stjórnendur og æðstu embættismenn líklegastir til að vilja brauðið sitt dökkbrúnt (stilling 5) eða 11%, en þeir voru jafnframt líklegastir til að borða ekki ristað brauð (6%). Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins (11%) var einnig líklegra en stuðningsfólk annarra hópa til að vilja brauðið sitt dökkbrúnt og var auk þess ólíklegast til þess að vilja ristað brauðið sitt ljósgyllt líkt og meirihluti Íslendinga kaus, eða 48%.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar, 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 974 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 6.-14. júní 2017