Alþingiskosningar

|

Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 6. til 14. júní 2017 mældist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi íslenskra flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 24,9% en það er 0,7 prósentustiga breyting frá síðustu könnun sem lauk 16. maí 2017. Fylgi Vinstri grænna (20,6%) og Pírata (13,7%) lækkaði einnig eilítið frá síðustu mælingum.

Fylgi Framsóknar jókst upp í 13,4%, úr 12,2%, og stuðningur við Samfylkinguna hækkaði mest allra flokka frá síðustu mælingu eða um 2,0% og mældist nú 11,3%. Allar breytingar á fylgi flokka reyndust innan vikmarka frá síðustu könnun (frá í maí 2017).

Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði á milli mælinga. Alls kváðust 30,9% styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 31,4% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 13,4% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,3% og mældist 9,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 5,2% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mælidst nú 3,6% og mældist 3,2% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 2,9% og mældist 3,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,4% samanlagt.


1706 Fylgi01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,3%), myndu skila auðu (8,3%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1706 Fylgi02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1706 Fylgi03

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 974 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 14. júní 2017