Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 11-16. maí 2017 mælist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi íslenskra flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist 25,6% en það er 0,4 prósentustiga fylgishækkun frá síðustu könnun sem lauk 26.apríl 2017. Vinstri grænir mældust með næst mest fylgi eða 21,4% en það er 2 prósentustiga lækkun frá síðustu mælingu þar sem fylgið mældist 23,4%. Fylgi Pírata mældist 14,1% og er það hækkun um 1,3 prósentustig frá síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina hélst í stað milli mælinga og mældist nú 31,4%.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 12,2% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,3% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 5,5% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mælidst nú 3,4% og mældist 3,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,2% sem er það sama og í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 5,4% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,0%), myndu skila auðu (7,4%), myndu ekki kjósa (2,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 943 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 16. maí 2017