Íslendingar eru heldur neikvæðir gagnvart hugmyndinni um innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi. Þetta sýnir nýleg könnun MMR sem var framkvæmd 11.-26. apríl 2017. Rúm 39% þátttakenda í könnuninni kváðust mjög andvíg innheimtu veggjalda. Aðeins tæp 7% kváðust mjög fylgjandi innheimtu veggjalda. Á heildina sögðust tæp 56% andvíg veggjöldum en rúm 25% fylgjandi.  

 

 1704 vegtollar2Spurt var: „Almennt séð, hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú innheimtu veggjalda (þ.e. vegatolla) til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi? -með veggjöldum (vegatollum er átt við rukkun fyrir notkun ákveðinna vega“ Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), hvorki fylgjandi né andvíg(ur), frekar fylgjandi, mjög fylgjandi, veit ekki og  vil ekki svara.
Samtals tóku 96,0% svarenda afstöðu til spurningarinnar.

Munur á afstöðu eftir lýðfræðihópum 

Karlar (60%) reyndust líklegri en konur (50%) til að vera andvígir veggjöldum. Lítill munur var aftur á móti á kynjunum þegar hlutfall þeirra sem sögðust fylgjandi vegtollum er skoðað. Af körlum kváðust 25% vera fylgjandi og 26% kvenna.

Af þátttakendum á aldrinum 18-29 ára kváðust 32% vera hvorki andvíg né fylgjandi veggjöldum. Með auknum aldri jókst hlutfall þeirra sem voru fylgjandi veggjöldum en 29% þátttakenda 68 ára og eldri sögðust fylgjandi.

Íslendingar búsettir á landsbyggðinni (63%) reyndust líklegri til að vera andvígir innheimtu veggjalda heldur en íbúar höfuðborgarsvæðisins (52%).

Stuðningsfólk Pírata (57%) og Samfylkingarinnar (50%) reyndust töluvert líklegri en stuðningsflokk annarra flokka til að vera mjög andvíg innheimtu veggjalda. Stuðningsfólk Viðreisnar reyndist aftur á móti mun líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að vera frekar eða mjög hlynnt veggjöldum eða 45%.  

 1704 vegtollar x

Eldri könnun sama efnis frá 2011: Andstaða við veggjöld

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar, 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 926 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 11.-26. apríl 2017