Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 6. til 13. mars 2017 mælist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi íslenskra flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist nú 25,4% en það er 1,5 prósentustiga lækkun frá síðustu könnun sem lauk 24. febrúar 2017. Vinstri grænir mældust með næst mest fylgi eða 23,5% og er það eilítið lægra fylgi en í síðustu könnun þegar fylgið mældist 23,9%. Fylgi Pírata mældist nú 13,7% og er það hækkun um 2,1 prósentustig frá síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli mælinga. Alls kváðust 34,5% styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 37,9% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 11,4% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 8,8% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 5,5% og mældist 6,3% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 5,0% og mældist 5,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 6,9% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,5%), myndu skila auðu (7,2%), myndu ekki kjósa (1,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 921 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 13. mars 2017