Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 17. til 24. febrúar 2017 mælist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi íslenskra flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist nú 26,9% en var 24,4% í síðustu könnun sem lauk 15. febrúar 2017. Vinstri grænir mældust með næst mest fylgi eða 23,9%. Það er lækkun um 3,1 prósentustig frá síðustu mælingu en þó, líkt og fylgisbreytingar annarra flokka, innan vikmarka. Fylgi Framsóknarflokksins jókst um 1,5% milli kannana og mælist fylgið nú 12,2%.
Stuðningur við ríkisstjórnina hækkaði milli kannana og kváðust 37,9% styðja ríkisstjórnina. Það er 3 prósentustiga hækkun frá síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,6% og mældist 11,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 8,0% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,3% og mældist 6,2% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 5,2% og mældist 5,4% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 5,9% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 85,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (4,7%), myndu ekki kjósa (0,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 928 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 17. til 24. febrúar 2017