Stór hluti Íslendinga er andvígur því að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum á Íslandi. Þetta sýnir nýleg könnun MMR sem framkvæmd var dagana 10. til 15. febrúar 2017. Nokkur munur var á afstöðu eftir því hvort um var að ræða sölu á sterku áfengi eða léttu áfengi og bjór. Töluvert hærra hlutfall svarenda kváðust andvígir sölu á sterku áfengi (74,3%) í matvöruverslunum heldur en sölu á léttu áfengi og bjór (56,9%). Einungis 15,4% kváðust hlynnt sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum en 32,7% kváðust hlynnt sölu á léttu áfengi og bjór.
Spurt var: „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu að leyft verði að selja eftirfarandi flokka áfengis í matvöruverslunum á Íslandi?“ Svarmöguleikar voru: Mjög hlynnt(ur), Frekar hlynnt(ur), Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur), Frekar andvíg(ur), Mjög andvíg(ur) og Veit ekki/Vil ekki svara.
Samtals tóku 99,2% svarenda afstöðu til spurningarinnar um sterkt áfengi og 98,9% um létt áfengi og bjór.
Munur á afstöðu eftir lýðfræðihópum - sterkt áfengi
Konur voru almennt líklegri en karlar til að vera andvígar sölu sterks áfengis í matvöruverslunum. Af konum kváðust 70% vera mjög andvígar sölu sterks áfengis í matvöruverslunum og 58% karla. Af körlum kváðust 14% vera mjög hlynntir sölu sterks áfengis í matvöruverslunum en 5% kvenna.
Andstaða við sölu sterks áfengis í matvöruverslunum jókst með auknum aldri en 46% þeirra á aldrinum 18-29 ára kváðust mjög andvíg og 81% þeirra sem voru 68 ára eða eldri.
Stuðningsmenn Vinstri grænna voru hvað líklegastir til að vera andvígir sölu sterks áfengis í matvöruverslunum en 89% þeirra kváðust vera andvíg. Minnst andstaða var hjá stuðningsmönnum Pírata (55%), Sjálfstæðisflokks (65%) og Bjartrar framtíðar (65%).
Munur á afstöðu eftir lýðfræðihópum - létt áfengi
Konur reyndust almennt séð líklegri en karlar til að vera andvígar sölu létts áfengis og bjórs í matvöruverslunum. Af kvenkyns svarendum kváðust 50% mjög andvígar en 43% karla. Af karlkyns svarendum kváðust 28% vera mjög hlynntir en 13% kvenna.
Af fólki á aldrinum 18-29 ára kváðust 42% vera andvíg sölu létts áfengis og bjórs í matvöruverslunum en 43% hlynnt. Andstaðan jókst með hækkandi aldri og í elsta aldurshópnum kváðust 61% andvíg en 28% hlynnt.
Stuðningsmenn Viðreisnar reyndust líklegust til að vera hlynnt sölu létts áfengis og bjórs í matvöruverslunum, eða 58%. Af stuðningsmönnum Bjartrar framtíðar kváðust 49% vera hlynnt og 48% stuðningsmanna Pírata. Einungis 19% stuðningsmanna Vinstri grænna kváðust hlynnt sölu á léttu áfengi og bjór í matvöruverslunum.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar, 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 908 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 10.-15. febrúar 2017