Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 10. til 15. febrúar 2017 mælast Vinstri græn með mest fylgi íslenskra flokka. Fylgi Vinstri grænna var stöðugt milli mælinga og mældist 27,0% líkt og í síðustu könnun sem gerð var dagana 1. til 5. febrúar 2017. Sjálfstæðisflokkurinn kemur næst á eftir með 24,4% fylgi og er það hækkun um 0,6 prósentustig frá síðustu mælingu. Munurinn á milli þessa tveggja flokka er þó innan vikmarka og því ekki hægt að fullyrða hvor nýtur meira fylgist meðal þjóðarinnar allrar. Fylgi Pírata minnkaði um 1,7% milli mælinga og mælist nú 11,9%.
Stuðningur við ríkisstjórnina hækkaði milli kannana og kváðust 34,9% styðja ríkisstjórnina. Það er 2,3 prósentustiga hækkun frá síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,7% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,0% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,2% og mældist 5,6% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 5,4% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,3% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 84,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,4%), myndu skila auðu (5,3%), myndu ekki kjósa (1,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 904 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 15. febrúar 2017