Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 1. til 5. febrúar 2017 mælast Vinstri græn stærst íslenskra flokka. Fylgi Vinstri grænna mældist 27,0% en það er 3,8 prósentustiga aukning frá meðalfylgi Vinstri grænna í janúar 2017 (sem var 23,2%). Sjálfstæðisflokkurinn kemur næst á eftir með 23,8% fylgi en það er minnkun um 0,8 prósentustig frá síðustu mælingu. Fylgi Pírata stóð í stað milli mælinga og mældist 13,6%.
Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli kannana en 32,6% kváðust styðja ríkisstjórnina. Það er 2,6 prósentustiga minnkun frá því í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,7% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 7,8% og mældist 7,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 5,6% og mældist 6,8% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 5,3% og mældist 7,0% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 7,1% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (5,4%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 983 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 1. til 5. febrúar 2017