Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 12. til 26. janúar 2017 mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 24,6% en það er 1,5 prósentustigum minna en í síðustu könnun sem lauk 10. janúar 2017. Vinstri-grænir koma næst á eftir með 22,0% fylgi en það er minnkun um 2,3 prósentustig frá síðustu mælingu. Píratar mælast nú með 13,6% fylgi sem er einu prósentustigi minna en í síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 35,0% sem er mun lægri stuðningur en aðrar ríkisstjórnir hafa mælst með við upphaf stjórnarsetu og í eina skiptið sem ný ríkisstjórn hefur ekki mælst með stuðning meirihluta kjósenda. Við upphaf stjórnarsetu síðustu tveggja ríkisstjórna mældist stuðningur við þær 56% (S+V) og 60% (B+D).
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,5% og mældist 10,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 7,0% og mældist 6,4% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 7,0% og mældist 6,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,8% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 6,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,4%), myndu skila auðu (6,6%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 910 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 26. janúar 2017