Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 3. til 10. janúar 2017 mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur flokka. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 26,1% en það er 3,2 prósentustigum minna en í síðustu könnun sem lauk 26. desember 2016. Vinstri-grænir koma næst á eftir með 24,3% fylgi en það er aukning um 3,6 prósentustig frá síðustu mælingu. Píratar mælast nú með 14,6% fylgi sem er tæpum 2 prósentustigum meira en í síðustu mælingu.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,9% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,9% og mældist 7,0% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 6,4% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 6,3% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,5%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 86,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,9%), myndu skila auðu (4,8%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 954 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 3. til 10. janúar 2017