Traust

|

Fleiri bera lítið traust til fjölmiðla í dag heldur en fyrir tveimur árum síðan. Þetta sýnir könnun MMR á trausti til fjölmiðla sem lauk þann 14. desember síðastliðinn.

Af þeim fréttamiðlum sem kannaðir voru báru flestir svarendur mikið traust til Fréttastofu RÚV (69%) og ruv.is (67%). 

Í flokki netfréttamiðla naut mbl.is næst mest trausts meðal almennings (á eftir ruv.is). Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41% bera mikið traust til mbl.is. Traust til mbl.is hefur þó dregist nokkuð töluvert saman frá nóvember 2013 þegar 50% aðspurðra sögðust bera mikið traust til mbl.is. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 33% bera mikið traust til visir.is, 31% sögðust bera mikið traust til kjarninn.is, 28% til stundin.is, 17% til vb.is og 8% til dv.is.

Sá prentmiðill sem flestir báru mikið traust til var Morgunblaðið (37%). Þar á eftir fylgdi Fréttablaðið (30%), en þeim sem sögðust bera mikið traust til Fréttablaðsins hefur fækkað um 9% síðan árið 2013. 27% svarenda sögðust bera mikið traust til Viðskiptablaðsins, 26% sögðust bera mikið traust til Stundarinnar og 25% til Fréttatímans. 7% svarenda sögðust bera mikið traust til DV.

 1612 TrustMedia 01Spurt var: „Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila?“
Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust.
Hlutfallstölur eru reiknaðar af heildarfjölda þeirra sem tóku afstöðu til einhvers fjölmiðils.
Samtals tóku 99,0% afstöðu til spurningarinnar.

 1612 TrustMedia 02

 

1612 TrustMedia 04

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar, 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 942 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 9.-14. desember 2016

Eldri kannanir sama efnis:
2014 desember: MMR könnun: Traust til fjölmiðla
2013 desember: MMR könnun: Traust til fjölmiðla
2012 desember: MMR könnun: Traust til fréttamiðla
2011 apríl: MMR könnun: Traust til fréttamiðla
2010 apríl: MMR könnun: Traust til fréttamiðla
2009 maí: MMR könnun: Traust til fréttamiðla

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.