Alþingiskosningar

|

Samkvæmt nýrri könnun MMR mælist Sjálfstæðisflokkurinn (26,0% fylgi) stærstur flokka. Vinstri-grænir koma næst á eftir með 20,7% fylgi, sem samsvarar 4,5 prósentustiga fylgisaukningu frá síðustu mælingu sem lauk 28. október síðastliðinn. Píratar mælast nú með 11,9% fylgi, sem er um 8,6 prósentustigum minna en í síðustu mælingu.

Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,6% eða 1,7 prósentustigum hærra en í síðustu könnun sem lauk 28. október.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 9,6% sem er um 3 prósentustigum hærra en í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,4% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 5,6% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist um og undir 3%.


161511 fylgismynd1

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 86,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,9%), myndu skila auðu (4,8%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

 

Þróun yfir tíma

161511 fylgiTima1

 
 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 904 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 14. nóvember 2016