Alþingiskosningar

|

Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 19. til 26. október mælist Sjálfstæðisflokkurinn (21,9% fylgi) stærstur flokka. Píratar koma næst á eftir með 19,1% fylgi og Vinstri-grænir þar á eftir með 16,0% fylgi.

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,0% en mældist 9,2% í síðustu könnun sem lauk 13. október.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,3% en mældist 10,2% í síðustu könnun sem lauk 13. október.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 8,8%, samanborið við 8,2% í síðustu könnun sem lauk 13. október.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist 7,6% en mældist 9,0% í síðustu könnun sem lauk 13. október.
Fylgi Flokks fólksins mældist 3,4%, samanborið við 1,2% í síðustu könnun sem lauk 13. október.
Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.


161026 Fylgi05

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 86,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,5%), myndu skila auðu (4,9%), myndu ekki kjósa (1,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

161026 Fylgi02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,3%. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,1% í síðustu könnun sem lauk 13. október.

161026 Fylgi03 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 85,5% afstöðu til spurningarinnar. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 981 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 19. til 26. október 2016