Samkvæmt nýrri könnun MMR mælist Sjálfstæðisflokkurinn (21,4% fylgi) stærstur flokka. Píratar koma næst á eftir með 19,6% fylgi en Píratar mældust stærsti flokkurinn í síðustu könnun MMR (21,6%) sem lauk 26. september síðastliðinn.
Vinstri grænir mældust með 14,5% fylgi og bæta við sig þremur prósentustigum frá því í síðustu könnun sem lauk 26. september.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,2% eða 2,1 prósentustigi lægra en í í síðustu könnun sem lauk 26. september.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,2%, borið saman við 12,2% í könnun sem lauk 26. september.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist 9,0% nú, borið saman við 9,3% í síðustu könnun sem lauk 26. september.
Björt framtíð mælist nú með 8,2% samanborið við 4,9% í síðustu könnun sem lauk 26. september.
Íslenska Þjófylkingin mælist nú með 2,8%, borið saman við 2,3% í síðustu könnun sem lauk 26. september.
Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 84,1% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,8%), myndu skila auðu (4,9%), myndu ekki kjósa (1,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,1%. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 31,5% í síðustu könnun sem lauk 26. september og 34,5% í könnun sem lauk 19. september.
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,9% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 950 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 13. október 2016