Samkvæmt nýrri könnun MMR mælast Píratar (21,6% fylgi) og Sjálfstæðisflokkurinn (20,6% fylgi) stærstir flokka þó fylgi beggja dali lítillega frá síðustu könnun (þó innan vikmarka).
Viðreisn mældist með 12,3% fylgi sem mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með hingað til og er til að mynda 3,5 prósentustigum hærra en í könnun sem lauk 29. ágúst síðastliðinn.
Fylgi Framsóknar mældist 12,2% nú, borið saman við 10,6% í könnun sem lauk 29. ágúst.
Fylgi Vinstri-grænna mældist 11,5% nú, borið saman við 12,4% í könnun sem lauk 29. ágúst.
Samfylkingin mældist með 9,3% fylgi og mældist með 9,1% fylgi í könnun sem lauk 29. ágúst.
Björt framtíð mældist með 4,9% fylgi, sem er hæsta mæling síðan í könnun sem lauk 20. maí á þessu ári, en flokkurinn mældist með 4,5% fylgi í könnun sem lauk þann 29. ágúst.
Fylgi annarra flokka mældist um og undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,4%), myndu skila auðu (7,2%), myndu ekki kjósa (1,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 31,5%, sem er lægsta mæling síðan í apríl, þegar stuðningur við ríkisstjórnina mældist 26%. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,5% í síðustu könnun sem lauk 19. september og 35,6% í könnun sem lauk 29. ágúst.
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 87,6% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 985 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 20. til 26. september 2016