MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 12. til 19. september. Samkvæmt niðurstöðum mældust Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar með jafn mikið fylgi - eða 22,7% hvor flokkur fyrir sig.
Fylgi Vinstri-grænna mældist 13,2% og hefur verið svotil stöðugt síðan í seinnihluta júlí þegar fylgi flokksins mældist 12,9%.
Viðreisn mældist með 11,5% fylgi, sem er 2,7 prósentustigum meira en í síðustu könnun sem lauk 29. ágúst.
Framsókn mældist með 11,0% fylgi og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Samfylkingin mældist með 8,1% fylgi, borið saman við 9,1% í síðustu könnun.
Björt framtíð mældist með 4,1% fylgi, borið saman við 4,5% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist um og undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,7%), myndu skila auðu (6,0%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,5%, borið saman við 35,6% í síðustu könnun (sem lauk þann 29. ágúst síðastliðinn).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 87,6% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 905 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 19. september 2016