Í þessari fyrstu könnun sem framkvæmd var eftir að Guðni Th. Jóhannesson var kosinn í embætti forseta Íslands kemur í ljós að mikil ánægja ríkir með störf hans. Alls kváðust 68,6% þátttakenda vera ánægð með störf nýja forsetans og hefur ánægja með störf forseta ekki mælst jafn há frá því MMR hóf slíkar mælingar (í mars 2011). Einungis 6,4% kváðust vera óánægð með störf Guðna Th. sem forseta Íslands.
Spurt var: ,,Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Guðna Th. Jóhannessonar sem forseta Íslands?''
Svarmöguleikar voru: Mjög ánægð(ur), ánægð(ur), hvorki ánægð(ur) né óánægður, óánægð(ur), mjög óánægð(ur) og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 95,0% afstöðu til spurningarinnar.
Ánægja með störf Guðna Th. Jóhannessonar sem forseta reyndist mismunandi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, en þau sem studdu ríkisstjórnarflokkana mældust nokkuð óánægðari með störf forseta en þau sem studdu aðra stjórmálaflokka. Ánægðastir voru stuðningsmenn Samfylkingunar en 96% þeirra kváðust vera ánægð með störf Guðna Th. Jóhannessonar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 949 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 29. ágúst 2016