MMR kannaði nýlega fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina. Samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 22. til 29. ágúst mældust Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar með mest fylgi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,6%, borið saman við 24,0% í síðustu könnun (sem lauk 22. júlí). Píratar mældust nú með 22,4% fylgi, borið saman við 26,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri-grænna stendur nú í 12,4% borið saman við 12,9% í síðustu könnun, en fylgi Vinstri-grænna mældist 18,0% í könnuninni þar áður (sem lauk 4. júlí).
Framsókn mælist nú með 10,6% fylgi, borið saman við 8,3% í síðustu könnun og 6,4% þar áður.
Samfylkingin mældist nú með 9,1% fylgi, borið saman við 8,4% í síðustu könnun og Viðreisn mældist með 8,8% fylgi, borið saman við 9,4% í síðustu könnun.
Björt framtíð mældist nú með 4,5% fylgi, borið saman við 3,9% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist um og undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,5%), myndu skila auðu (6,0%), myndu ekki kjósa (0,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 35,6%, borið saman við 33,9% í síðustu könnun (sem lauk þann 22. júlí síðastliðinn).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 86,3% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 949 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 29. ágúst 2016